Á döfinni á vegum ÍSFÁN 2010

Miðvikudagur, 17. Mars 2010 - 12:53

 Listi yfir atburði sem verða á döfinni, á vegum ÍSFÁN árið 2010:

Þorrablót06.02.2010  / Yfirstaðið

Unglingakeila 13+16.04.2010

Vorveisla13.05.2010

17. júní fagnaður19.06.2010  (17. júní verður á alm. vinnudegi, fimmtudegi.  Þess vegna færum við hann yfir á 19. júní, laugardag.)

Haustfagnaður - september (nánari dags. auglýst síðar)

Unglingakeila 13+ - Breyting á staðsetningu!

Föstudagur, 16. Apríl 2010 - 20:00


Bowling fyrir unglinga á Árhus svæðinu sem eru 13 +

Unglinga bowlingkvöld verður haldið föstudaginn 16. apríl 2010 frá kl. 20.00 til 22.00 í Bowling Nord, Helsingforsgade 6, 8200 Århus.

Unglingakvöld ISFAN eru ætluð ungu fólki á aldrinum ca. 13 ¬– 17 ára sem vill hitta aðra íslenska unglinga á svæðinu og hafa það gaman saman!
Á staðnum verða 2 mömmur sem hafa umsjón með kvöldinu og vonumst við auðvitað til að sjá sem flesta. Þeir sem hafa aðgang að Facebook eru beðnir að melda sig á "event'ið".

Vorveisla í dag

Fimmtudagur, 13. Maí 2010 - 10:17

 Við erum ON með vorveisluna, sjá nánar:  http://isfan.dk/a-dofinni/vorveisla.  Munið eftir að klæðast eftir veðri.

Vorveisla

Fimmtudagur, 13. Maí 2010 - 11:58

 Ísfán boðar til vorveislu fimmtudaginn 13. maí, frá kl. 12:00 - 14:00 á útivistarsvæði við Egá Engsø. Bílastæði eru við Viengevej og er smá spölur frá bílastæði að svæðinu.

Dagskrá:
Hittast, sýna sig og sjá aðra
Snæða nesti
Taka þátt í leikjum
Grilla snobrød

Fólk kemur sjálft með góða skapið, mat og matarföng. Ísfán undirbýr eldstæði þar sem hægt er að skella á grillið og hita snobrød á priki (deig verður að staðnum)

Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.

AmEnY í Sankt Pauls kirkjunni í Kaupmannahöfn

Laugardagur, 22. Maí 2010 - 8:34



Laugardagskvöldið 22. maí mun dúettinn AmEnY, sem samanstendur af söngvurunum Önnu Hansen og Arnari Þóri Viðarssyni, halda opnunartónleika í Sankt Pauls kirkjunni, kirkju Íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn.

Söngskráin samanstendur af 15 lögum sem öll eiga það sameiginlegt að hafa unnið hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar í gegnum aldanna rás.

Dyrnar opna klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Aðgangur er ókeypis.

17. júníhátíð

Miðvikudagur, 26. Maí 2010 - 10:54

 Hæ, hó, jibbi jei og jibbiii jei, það er kominn 17.juní...!


Og af því tilefni verður ÍSFÁN með 17. júní hátíð, laugardaginn 19.júní 2010, þar sem 17. júní ber að þessu sinni upp á fimmtudag, sem er almennur vinnudagur.

You are missing some Flash content that should appear here! Perhaps your browser cannot display it, or maybe it did not initialise correctly.

Sigrún Þormar