17. júníhátíð
Hæ, hó, jibbi jei og jibbiii jei, það er kominn 17.juní...!
Og af því tilefni verður ÍSFÁN með 17. júní hátíð, laugardaginn 19.júní 2010, þar sem 17. júní ber að þessu sinni upp á fimmtudag, sem er almennur vinnudagur.
Við munum hefja hátíðina kl. 14.00 á lóð Grænlendingafélagsins (Dalgas Avenue 52 8000 Århus C)
ÍSFÁN mun selja íslenskt nammi, gos og bjór á vægu verði, SS pylsur verða grillaðar, farið verður í leiki og tækifæri verður til að spjalla við landann.
Að þessu sinni ætlum við að bjóða fólki að vera með sölu- eða kynningarbás á hátíðinni. Þetta er hugsað fyrir þá sem eru að selja íslenskar afurðir og vilja kynna þær, þá sem eru að hanna, prjóna eða með einhversskonar handverk sem það vill koma á framfæri.
Á staðnum verður sett upp langt tjald og hugsanlega verður hægt að tengjast í rafmagn en fólk verður að koma með söluborð með sér eða annað sem það vill hafa með.
Þeim sem hafa áhuga á að fá bás er bent á að senda tölvupóst á isfan@isfan.dk. Sá sem er fyrstur til að panta, kemst fyrstur að!
Við hvetjum fólk til að taka daginn frá. Nánari upplýsingar munu koma síðar. Fylgstu með á facebook síðunni eða vefsíðu félagsins.




