AmEnY í Sankt Pauls kirkjunni í Kaupmannahöfn

Laugardagur, 22. Maí 2010 - 8:34



Laugardagskvöldið 22. maí mun dúettinn AmEnY, sem samanstendur af söngvurunum Önnu Hansen og Arnari Þóri Viðarssyni, halda opnunartónleika í Sankt Pauls kirkjunni, kirkju Íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn.

Söngskráin samanstendur af 15 lögum sem öll eiga það sameiginlegt að hafa unnið hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar í gegnum aldanna rás.

Dyrnar opna klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Aðgangur er ókeypis.

Hægt er að lesa nánar um AmEnY á heimasíðu þeirra www.amenymusic.com  

Sigrún Þormar
islandsfisk