Jólagjafir frá Danmörku

 Kæru Íslendingar í Danmörku

Eimskip mun halda uppi hefð sinni í ár að bjóða uppá flutning á jólagjöfum til og frá Íslandi.

Jólapakkasendingar frá Danmörku verða sendar með DET 948 föstudaginn 4. desember og verða á Íslandi þriðjudaginn 8. desember.

Móttaka jólapakka:
• Horsens 1. desember frá 18:00-19:00
• Aarhus 30. nóv, 1. des og loka skilafrestur er 2. des klukkan 14:00
o Vinsamlega skila pökkum til Sigurbjargar Hjartardóttur-EIMSKIP Østhavnsvej 37 8000 Aarhus Sími 86 20 48 19.

Eftirfarandi reglur gilda um sendingu jólapakka:
Verð fyrir hverja sendingu er DKK 350 og hámarksþyngd er 20 Kg. Andvirði hverrar gjafar má ekki vera meira en ISK 10.000.
Mikilvægt er að:
• Merkja hvern pakka með nafni, heimilisfangi og síma sendanda og móttakanda
• Á flutningsfyrirmælunum komi fram nafn, heimilisfang, kennitala og símanúmer hjá sendanda og móttakanda.
• Fram komi á flutingsfyrirmælum verðmæti hvers pakka
• Heildarverðmæti allra pakka sé tekið fram á flutningsfyrirmælum
• Þyngd sendingar sé rétt
• Fyrirframgreiða allan flutningskostnað

Hér má nálgast eyðublað til prenta og fylla út

Samkvæmt reglum Íslenskra tollayfirvalda er með öllu óheimilt að flytja inn kjöt og lyf. Takmarkað magn áfengis og tóbaks má senda og verður að taka fram á pakkalistanum. Greiða skal toll af slíkum vörum.

Vinsamlegast athugið vel að ofanskráðu sé fylgt í hvívetna og að allar nauðsynlegar upplýsingar komi fram á farmbréfi / móttökukvittun

Mögulegt er að senda jólapakka áfram innanlands sé þess óskað gegn DKK 100 auka greiðslu.

Tengiliðir eru:

Eimskip Denmark A/S:
Sigurbjörg Hjartardóttir shj@eimskip.dk
Sími: +45 86 20 48 19

Eimskip á Íslandi:
Elín Eiríksdóttir gjaldkeri@eimskip.is
Sími: +354 5257505
Halla Sjöfn Ágústsdóttir gjaldkeri@eimskip.is
Sími: +354 5257015

Heimilisfang á skrifstofunni í Aarhus:
Eimskip Denmark A/S
Østhavnsvej 37
8000 Aarhus C

You are missing some Flash content that should appear here! Perhaps your browser cannot display it, or maybe it did not initialise correctly.

Sigrún Þormar