Jólagjafir til Danmörku

 Kæru Íslendingar í Danmörku

Eimskip mun halda uppi hefð sinni í ár að bjóða uppá flutning á jólagjöfum til og frá Íslandi.

Jólapakkasendingar til Danmerkur verða sendar með DET948 frá Íslandi fimmtudaginn 26. nóvember og er í Aarhus föstudaginn 6. desember

• Móttaka pakka er í afgreiðslu Vöruhótelsins, Sundahöfn, í síðasta lagi þriðjudaginn 24. nóvember fyrir kl. 12.00. Elín Eiríksdóttir gjaldkeri@eimskip.is , sími 525-7505, Halla Sjöfn Ágústsdóttir gjaldkeri@eimskip.is , sími 525-7015.

Eftirfarandi reglur gilda um sendingu jólapakka:
Verð fyrir hverja sendingu er EUR 50 og hámarksþyngd er 20 kg. Andvirði hverrar gjafar má ekki vera meira en ISK 10.000.
Mikilvægt er að:
• Merkja hvern pakka með nafni, heimilisfangi og síma sendanda og móttakanda
• Á flutningsfyrirmælunum komi fram nafn, heimilisfang, kennitala og símanúmer hjá sendanda og móttakanda.
• Fram komi á flutingsfyrirmælum verðmæti hvers pakka
• Heildarverðmæti allra pakka sé tekið fram á flutningsfyrirmælum
• Þyngd sendingar sé rétt
• Fyrirframgreiða allan flutningskostnað
• Láta móttakendur vita að þeir eigi von á sendingu sem þeir verða að sækja í samráði við skrifstofur Eimskips erlendis.

Hér má nálgast eyðublað til prenta og fylla út

Það er með öllu óheimilt að senda út kjöt, fisk eða lyf.

Vinsamlegast athugið vel að ofanskráðu sé fylgt í hvívetna og að allar nauðsynlegar upplýsingar komi fram á farmbréfi / móttökukvittun

Tengiliðir eru:

Eimskip Denmark A/S:
Sabina Fontana saf@eimskip.dk
Sími: +45 86 20 48 12

Eimskip á Íslandi:
Elín Eiríksdóttir gjaldkeri@eimskip.is
Sími: +354 5257505
Halla Sjöfn Ágústsdóttir gjaldkeri@eimskip.is
Sími: +354 5257015

Heimilisfang á skrifstofunni í Aarhus:
Eimskip Denmark A/S
Østhavnsvej 37
8000 Aarhus C

You are missing some Flash content that should appear here! Perhaps your browser cannot display it, or maybe it did not initialise correctly.

Sigrún Þormar