Vilt þú hafa áhrif á næsta þorrablót hjá Ísfán 2011

Fréttamynd

Ísfán auglýsir eftir hressu fólki 5 - 6 manns í næstu þorrablótsnefnd 2011. Þorrablótið er stærsti viðburðurinn sem að Ísfán heldur og er óhætt að segja að það sé líf og fjör að starfa í þorranefndinni :).

Æskilegt er að nefndin byrji störf í september því það þarf að bóka húsnæði í tíma ásamt fleirum atriðum. Áhugasamir geta sent tölvupóst til thorrablot@isfan.dk með nafni og símanúmeri.

Óska eftir heilbrigdum karlmönnum til ad taka tátt í vísindarannsókn

Páll Karlsson heiti ég og er doktorsnemi í læknisfrædi vid sjúkrahúsid í Århus. Ég er ad vinna med sjúklingum med taugabólgu og er ad hefja rannsóknir á sjúkdóminum. Í tví sambandi vantar mig heilbrigda sjálfbodalida til ad taka tátt í rannsókninni minni. Mér datt í hug ad tad gætu verid einhverjir íslendingar sem hefdu áhuga á ad taka tátt.

Síðasti séns að kjósa - 27. maí (fimmtudagur)

Sveitastjórnarkostningar á Íslandi - Utankjörstaðaatkvæðisgreiðsla í Århus

Í tengslum við sveitastjórnarkostningar á Íslandi þann 29. maí 2010 fer utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fram frá og með þriðjudeginum 6. apríl og til og með fimmtudeginum 27. maí 2010.  Hægt er að kjósa utankjörstaðar hjá íslenska ræðismanninum í Århus – Lille Torv 6, 8000 Århus C (staðsett nálægt Magasín og dómkirkjunni).

Móðurmálskennslan í Árósum

Árósir 10.5.2010:

Móðurmálskennslan í Árósum.

Innritun fyrir næsta skólaár stendur nú yfir og lýkur í lok maí.
Innritunareyðublöð eiga börnin að fá í hendur í skólanum og skal þeim skilað á skrifstofu skólans eða til kennara.

Tilkynning frá ISLANDSFISK

 Íslandsfisk verður í Danmörku þann 5. og 6. júní næstkomandi.  Tveir nýjir afhendingarstaðir á Jótlandi;  Hirtshals og Sønderborg.  

Á grilllistanaum verða:  lambahryggsvöðvi, berjakryddlegið lambalæri, lambakótelettur og sjófrystur fiskur.  

Nánari upplýsingar á heimasíðu Islandsfisk

Sigrún Þormar
islandsfisk