Utankjörstaðarkosningar í Aarhus
Tilkynning frá skrifstofu ræðismanns Íslands í Århus:
Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave samningsins – utankjörstaðarkosningar í Aarhus.
Frá og með fimmtudeginum 28. janúar 2010 og fram til fimmtudags 4. mars 2010 fara fram utankjörstaðarkosningar á skrifstofu ræðismanns Íslands í Aarhus ¬- Lille Torv 6, 8000 Århus C ( nærri Magasín og dómkirkjunni).
Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA
11.1.2010
Alþingi hefur samþykkt lög um þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010, um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf.
Veislustýra þorrablóts Íslendinga 6.feb
Hin ofur hressa Bryndís Ásmundsdóttir leik og söngkona mun sjá um veislustjórn eins og henni einni er lagið á þorrablóti Íslendinga laugardaginn 6.feb 2010.
Stefán Hilmarsson og strákarnir í Sálinni hans Jóns míns verða með alvöru íslenskt sveitaball um kvöldið. En ert þú búin/n að tryggja þér miða á þorrablót ársins í Danmörku!!!!
Ódýrari miðar á Sálina - Frestur framlengdur
Frestur til að kaupa ódýrari miða á Þorrablót ÍSFÁN, 6. febrúar 2010, hefur verið framlengdur til 25. janúar (var áður 15. janúar).
Miðaverð á þorrablótið er 450.- fyrir mat og ball og 300.- fyrir ball. Eftir 25. janúar mun miðaverð hækka og kostar þá 500.- fyrir mat og ball og 360 fyrir ball.
Eftirspurn er mikil! Tryggið ykkur miða sem fyrst!
Tilboð á hótelgistingu og Rútuferðir
Hótel Cabinn í Árósum býður Íslendingum upp á tilboð á gistingu helgina 5 - 7 febrúar 2010 í tengslum við þorrablót Íslendinga.
Hægt er að velja um eftirfarandi herbergi Economy (enkeltværelse) DKK 400.- Commodore (dobbeltværelse) DKK 575.- Captains Class (stort dobbeltværelse) DKK 675.- Þeir Íslendingar sem vilja nýta sér þetta tilboð hjá Hótel Cabinn þurfa að gefa upp bókunarnúmerið 599340.




