Laugardaginn 27. Júní verður haldinn fjölskyldudagur í Grænlendingahúsinu frá klukkan 14:00 – 18:00.
Íslendingafélagið ætlar að bjóða upp á grillaðar íslenskar SS pylsur með tilheyrandi. Einnig verður selt íslenskt nammi ásamt gosi og öli á hagstæðu verði. Að sjálfsögðu er fólki einnig frjálst að taka eigið kjöt með á grillið ef það óskar þess. Stefnan er að dagskráin verði haldið utan dyra og því er fínt ef fólk tekur með sér teppi og tilheyrandi nestisbúnað að eigin þörf.
Móðurmálskennslan í Árósum.
Móðurmálskennslan í Árósum. Innritun fyrir næsta skólaár stendur nú yfir og lýkur í lok maí. Innritunareyðublöð eiga börnin að fá í hendur í skólanum og skal þeim skilað á skrifstofu skólans eða til kennara. Mikilvægt er að sem flestir skrái börnin sín til að tryggja áframhaldandi móðurmálskennslu á næsta skólaári.
Gervihnattasending Sjónvarpsins (RÚV)
Gervihnattasending Sjónvarpsins verður opin frá kl. 19:00 þ. 25. apríl til kl. 8:00 þ. 26. apríl 2009.
Þessi tími nær frá upphafi frétta kl .19:00 og þar til kosningavökunni líkur, þó ekki lengur en til kl. 8:00 morguninn eftir. Allt tímar íslenskir (GMT).
Vegna Alþingiskosninganna 25. apríl
Í dag 23. apríl, átti að vera seinasti frestur til að kjósa utan kjörstaða hjá konsúlnum í Aarhus, vegna komandi alþingiskosninga. Eftir hádegi í dag kom það hins vegar uppá hérna í Aarhus, að kjörseðlar kláruðust og voru þess vegna margir sem ekki gátu kostið.
Kosningafundur í Jónshúsi 16.apríl 2009
Í tilefni Alþingiskosninga þann 25. apríl næstkomandi verður haldinn kosningafundur í Jónshúsi í Kaupmannahöfn fimmtudagskvöldið 16.apríl milli átta og ellefu.
Fulltrúar framboðanna fá hver um sig um það bil fimm mínútur til framsögu. Þegar allir hafa lokið máli sínu er gert ráð fyrir spurningum úr sal.




