Vinna með námi

e-mail: sog_18@hotmail.com sími: 22388713

Yfirmaður minn bað mig um að athuga hvort ég þekkti einhvern sem vantaði aukavinnu (t.d. upplagt með skóla líkt og ég er að gera). Vinnan felst í að keyra sendibíl frá Langelandsgade í Aarhus, til Erritsö í Fredericia og til baka og einnig að keyra Aarhus-Fredericia-Aalborg (og endað í Aarhus). Aksturinn hefst um 20:50, þar sem keyrt er til Fredercia og Jyllands Posten er sóttur í prentsmiðju þar. Þá þarf að taka við blöðunum, í búntum af færibandi og stafla í bílinn. Um 22:30 er svo keyrt af stað til baka til Aarhus þar sem annar tekur við bílnum (líklega þri. eða miðvikudagskvöld og lýkur ferðinni þá um 23:30).

Ennig þarf stundum (fimmtud. og föstudagskvöld) að keyra blöðin áfram til Álaborgar (í stað þess að skipta um bílstjóra í Aarhus) þar sem þau eru sett í vöruhús. Síðan er farið heim. Launin eru 400 kr. fyrir hvern legg (Aarh-Fred-Aarh 400 og svo 400 til viðbótar þegar keyrt er til Álaborgar og lýkur ferðinni þá um 02-02:30).

Þetta eru semsagt þrjú kvöld í viku (þriðjud.-, fimmtud.- og föstudagskvöld) þar sem stutt ferð er einn daginn og löng ferð er tvo daga, s.s. um 2000 kr fyrir vikuna. Ekki er um "svarta" vinnu að ræða.

Svara áhugasömum og spurningum í tölvupósti (sog_18@hotmail.com). Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og tveir gætu líklega skipt þessu á milli sín ef það hentaði betur.

You are missing some Flash content that should appear here! Perhaps your browser cannot display it, or maybe it did not initialise correctly.

Sigrún Þormar