Punktar fyrir blótið á morgun...


Rútur frá rútubílastöðinni:


- Rúta frá pp busser fer frá rútubílastöðinni


• kl. 18:30, fyrir þá sem fara í mat og á ball

• Kl. 22:30, fyrir þá sem fara á ball

Síðasti frestur til að tryggja sér miða í matinn á þorrablótið !!!

Það er óhætt að segja að þjóðhátíðarstemningin verði líka á þorrablótinu laugardaginn 6.feb 2010 en ert þú búin/n að tryggja þér miða í hið glæsilega þorrahlaðborð? Síðasti frestur til að panta eða kaupa miða í matinn er á morgunn 25.01.10 !!!!! hægt er að panta miða í síma 26 33 04 57 eða kaupa miða inni á billetlugen.dk.

Þorraþrællin hrærir í pottum

Þorraþrællinn fer senn að huga að matargerð og þeir sem ætla að tryggja sér miða í hið stórglæsilega þorrahlaðborð þurfa að tryggja sér miða fyrir 25. Jan 2010.

Á hlaðborðinu má finna íslenskan eðal þorramat, harðfisk og hákarl, saltkjöt, hangikjét með uppstúfi, rófustöppu, rúgbrauð og flatkökur með sméri, GRILLAÐ lambalæri með tilheyrandi.

Veislustýra þorrablóts Íslendinga 6.feb

Hin ofur hressa Bryndís Ásmundsdóttir leik og söngkona mun sjá um veislustjórn eins og henni einni er lagið á þorrablóti Íslendinga laugardaginn 6.feb 2010.

Stefán Hilmarsson og strákarnir í Sálinni hans Jóns míns verða með alvöru íslenskt sveitaball um kvöldið. En ert þú búin/n að tryggja þér miða á þorrablót ársins í Danmörku!!!!

Ódýrari miðar á Sálina - Frestur framlengdur

Frestur til að kaupa ódýrari miða á Þorrablót ÍSFÁN, 6. febrúar 2010, hefur verið framlengdur til 25. janúar (var áður 15. janúar). 

Miðaverð á þorrablótið er 450.- fyrir mat og ball og 300.- fyrir ball. Eftir 25. janúar mun miðaverð hækka og kostar þá 500.- fyrir mat og ball og 360 fyrir ball.

Eftirspurn er mikil!  Tryggið ykkur miða sem fyrst!

You are missing some Flash content that should appear here! Perhaps your browser cannot display it, or maybe it did not initialise correctly.