Síðasti frestur til að tryggja sér miða í matinn á þorrablótið !!!
Það er óhætt að segja að þjóðhátíðarstemningin verði líka á þorrablótinu laugardaginn 6.feb 2010 en ert þú búin/n að tryggja þér miða í hið glæsilega þorrahlaðborð? Síðasti frestur til að panta eða kaupa miða í matinn er á morgunn 25.01.10 !!!!! hægt er að panta miða í síma 26 33 04 57 eða kaupa miða inni á billetlugen.dk.
Bryndís Ásmundsdóttir leik og söngkona sér um að stýra veislunni eins og henni er einni lagið. Eins og síðustu ár verður hægt að kaupa sér eðal vökva á hagstæðu verði Hr. Tópas og Brennivín verða kaldir á kantinum.
Á hlaðborðinu má finna íslenskan eðal þorramat, harðfisk og hákarl, saltkjöt, hangikjét með uppstúfi, rófustöppu, rúgbrauð og flatkökur með sméri, GRILLAÐ lambalæri með tilheyrandi.
Einstakt tækifæri að upplifa al íslenskt sveitaþorrablót eins og það gerist best tryggðu þér miða. Sjáumst hress og ÁFRAM ÍSLAND



