Tilboð á hótelgistingu og Rútuferðir
Hótel Cabinn í Árósum býður Íslendingum upp á tilboð á gistingu helgina 5 - 7 febrúar 2010 í tengslum við þorrablót Íslendinga.
Hægt er að velja um eftirfarandi herbergi Economy (enkeltværelse) DKK 400.- Commodore (dobbeltværelse) DKK 575.- Captains Class (stort dobbeltværelse) DKK 675.- Þeir Íslendingar sem vilja nýta sér þetta tilboð hjá Hótel Cabinn þurfa að gefa upp bókunarnúmerið 599340.
Þorrablót Íslendinga í Danmörku 2010
Það er hægt að kaupa miða á þorrablót Íslendinga laugardaginn 6.feb í öllum Fona búðum í Danmörku.
Þeir sem búa í Álaborg geta haft samband við Guðnýju í síma 61 71 31 62 til að panta miða.
Kveðja Þorrablótsnefndin
Miðasala á þorrablót Íslendinga 2010
Gleðilegt ár kæru félagar Það styttist heldur betur í viðburð ársins Þorrablót Íslendinga laugardaginn 6.feb 2010 þar sem Sálin hans Jóns míns ætlar að spila á al íslensku sveitaballi.Glóðvolgir þorrablótsmiðar eru komnir í sölu og hægt er að kaupa miða á eftirfarandi stöðum. Aros Hair Maren Smeds Gyde 4 8000 Århus C, tlf 86 12 18 02 og skrifstofu Eimskips Østhavnsvej 37, 8000 Århus C.Þeir sem ekki geta nýtt sér þessa sölustaði geta farið inn á www.billetlugen.dk/musik/9333/ keypt miða þar. Eftirspurnin er mikil og því hv
Þorrablót Íslendinga í Danmörku 2010
Nú er einstakt tækifæri fyrir Íslendinga í Danmörku á að upplifa al íslenska matarmenningu og sveitaballa stemningu.
Laugardaginn 6. febrúar 2010 verður haldið þorrablót Íslendinga í Danmörku. Blótgleðin verður haldin í Østhavnsvej 37, 8000 Århus C. Húsið opnar kl: 18:00 og er áætlað að borðhald hefjist um kl: 19:30.
Á hlaðborðinu má finna eðal þorramat sem bæði er súr og ósúr, rófustöppu, harðfisk og hákarl, hangikjét og uppstúf, rúgbrauð og flatbrauð með sméri, glóðasteikt íslenskt lambalæri með tilheyrandi.




